Baugur hefur hækkað tilboð sitt í hlutabréf Somerfield að því er óstaðfestar heimildir Reuters-fréttastofunnar herma.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur Baugur gefið í skyn að tilboð félagsins miðist við 205 pens á hlut. Þetta þýðir að heildarverð hlutabréfanna er um 1,1 milljarður punda eða nálægt 127 milljörðum króna. Forráðamenn Baugs munu fá aðgang að bókhaldi Somerfield um helgina. Upphaflegt tilboð Baugs miðaði við 190 pens á hlut.

Baugur er ekki einn um hituna en keppinautar Jóns Ásgeirs eru Robert Tchenguiz, sem er einn mest áberandi fasteignajöfur Bretlands ásamt bróður sínum Vincent, og Livingstone-bræður, sem eru líka fasteignajöfrar en í hópi þeirra leyndardómsfyllstu, öfugt við Tchenguiz-bræður.