Baugur hyggst leggja fram 40 milljón punda yfirtökutilboð í tískuvörukeðjuna Moss Bros sem sérhæfir sig í sparifatnaði fyrir karlmenn, að því er segir í frétt í breska blaðinu The Times.

Baugur á þegar 25% hlut í Moss Bros í gengum fjárfestingafélagið Unity Investments. Moss Bros sem skiptist í tvær deildir rekur rúmlega 150 verslanir á Bretlandseyjum.

Samkvæmt því sem segir í The Times hljóðar tilboð Baugs upp á 40 pens fyrir hlut í Moss Bros en hluturinn var 37 pens við lokun markaða í London á föstudaginn.