Verið er að flytja skrifstofur Baugs í Bretlandi í gömlu höfuðstöðvar Kaupþings banka í Mayfair-hverfinu í Vestur-London, samkvæmt upplýsingum frá Baugi.

Skrifstofa Baugs var staðsett á New Bond-stræti og flytur félagið nú höfuðstöðvar sínar í London ofar í götuna á horn Oxford-strætis og New Bond-strætis.

Höfuðstöðvar Kaupþings banka í Bretlandi hafa verið sameinaðar starfsemi Singer & Friedlander austar í Mayfair-hverfinu.