Diskurinn ehf., sem er Sverrir Berg Steinarsson er stjórnarformaður fyrir, hefur selt 6,64% hlut sinn í 365 til Baugs Group fyrir 980 milljónir króna, samkvæmt frétt til Kauphallarinnar. Um er að ræða 227.848.591 hluti og gengi viðskiptanna er 4,3.

Um leið og Baugur Group hf. keypti 6,64% í 365 hf. seldi Baugur Group hf. hlutina áfram til Landsbanka Íslands hf. Samhliða sölu hlutabréfanna gerir Baugur Group hf. afleiðusamning við Landsbanka Íslands hf. Samkvæmt
afleiðusamningnum ber Baugur Group hf. fjárhagslega áhættu og nýtur fjárhagslegs ávinnings af gengi umræddra hlutabréfa í 365 hf.

Eftir viðskiptin á Baugur Group 33% í 365 og er stærsti fjárfestirinn. Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs Group er jafnframt stjórnarformaður 365.