Baugur hefur keypt 25 milljónir hluti í FL Group á genginu 20,38 krónur á hlut, sem samsvarar rúmlega 509 milljónum króna, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Kaup Baugs koma í kjölfarið á kaupum Oddaflugs, eignarhaldsfélags Hannesar Smárasonar, forstjóra félagsins. Oddaflug keypti í FL Group fyrir 2,3 milljarða á föstudaginn og í gær og jókst hlutur eignarhaldsfélagsins í 19,7%.

Viðkiptin teljast til frumherja viðskipta, 4en Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group, er framkvæmdastjóri norænna fjárfestinga hjá Baugi Group.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarmaður FL Group, er forstjóri Baugs Group. Fjöldi hluta í eigu Jóns Ásgeirs og fjárhagslegra tengdra aðila er 1.442.586.434.

Eignarhlutur Baugs Group í FL Group er í nokkrum félögum, þar á meðal BG Capital og Baugi Group. Heildarfjöldi hluta í eigu Baugs Group og tengdra félaga er 1.441.934.845.