Baugur Group keypti í Glitni fyrir rúma 3,6 milljarða króna á genginu 26,04 krónur á hlut, samkvæmt greiningardeild Landsbankans. Um er að ræða 140 milljónir hluta.

"Baugur er einn af stærstu eigendum FL Group sem er stærsti eigandi Glitnis. Heildareign FL Group og tengdra aðila í Glitni nemur nú tæpum 4,5 milljörðum hluta eða 31,34% hlutafjár.

Fjármálaeftirlitið veitti FL Group og tengdum aðilum nýlega heimild að eiga að hámarki 33% eignarhlut í bankanum, það vantar því ekki nema 1,66% til að það náist," segir greiningardeildin.

Glitnir hækkaði um 2,76% í dag.