Baugur Group hefur keypt í Teymi fyrir 763 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 120.953.520 hluti og fóru viðskiptin fram á genginu 6,31. Fyrir viðskiptin átti 24,47% hlut í Teymi, samkvæmt upplýsingum frá hluthafaskrá.

Um leið og Baugur Group keypti 3,37% í Teymi seldi Baugur Group hluti áfram til Landsbanka Íslands. Samhliða sölu hlutabréfanna gerir Baugur Group afleiðusamning við Landsbanka Íslands samkvæmt afleiðusamningnum ber Baugur Group hf. fjárhagslega áhættu og nýtur fjárhagslegs ávinnings af gengi umræddra hlutabréfa í Teymi.

Þórdís J. Sigurðardóttir er stjórnarformaður Teymis en hún er framkvæmdastjóri hjá Baugi Groupi.