Baugur mun ekki selja hlut sinn í danska fasteignafélaginu Keops, segir í tilkynningu frá félaginu.

Baugur segir tilkynninguna gefna út í þeim tilgangi til að koma á framfæri upplýsingum um fyrirætlanir félagins þar sem mikið hefur verið rætt um að að Íslendingar losi fjárfestingar sínar í dönskum fyrirtækjum.

Afkoma Keops mun verða góð á næstu fjórðungum, segir í tilkynningu Baugs.