Baugur mun gera kauptilboð í dönsku verslunarkeðjuna Matas, segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Baugs á Norðulöndum í samtali við Börsen.

?Við höfum fylgst með Matas um tíma. Fyrirtækið er áhugavert og við höfum mikinn áhuga á að gera kauptilboð," sagði Skarphéðinn Berg. ?Við höfum áhuga á að vinna með núverandi stjórnendum, sagði hann.

Eigendur Matas munu hittast um helgina til að ræða kauptilboð frá öðrum hugsanlegum kaupanda, segir í frétt Börsen. Baugur mun leggja inn kauptilboð á morgun, segir í fréttinni.