Baugur og dótturfélag þess Stoðir vinna nú að kaupum á danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er málið að stærstum hluta frágengið og líklegt að niðurstaða liggi fyrir á næstu dögum.

Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að verðmæti Atlas sé um 28 milljónir danskra króna eða 28 milljarðar íslenskra.