Baugur mun í vikunni tilkynna að félagið standi enn við yfirtökutilboð sitt í tískuvöruverslunina Moss Bros að því er breska blaðið The Guardian greinir frá á vef sínum í dag en blaðið segir Baug enn hafa áhuga á félaginu.
Yfirtökutilboð Baugs hljómar upp á 40,2 milljónir punda.
Þá greinir The Guardian frá því að Baugur hafi lokið undirbúnings vinnu sinni vegna yfirtökunnar og sé nú að klára að ganga frá fjármögnun.
Eins og kunnugt er hefur Baugur gert yfirtökutilboð í félagið en þann 25. apríl síðastliðinn rann út frestur Baugs til að staðfesta tilboð sitt.
Þá bárust þær fréttir að Baugur hefði hætt við yfirtökutilboðið en talsmenn Baugs í Bretlandi sögðu að félagið myndi vinna málið á sínum eigin forsendum og samkvæmt sinni eigin tímatöflu.