Baugur Group hefur selt 34% hlut sinn í bresku matvöruheildsölunni Booker Group og Kaupþing banki hefur selt sinn hlut sem var liðlega 6% að því er segir í frétt The Daily Telegraph í dag.

Á sama tíma hefur Kaupthing Capital Partners keypt 22% í Booker sem það hefur samþykkt að selja ekki á næstu tólf mánuðum.

Booker var á sínum tíma hluti af Big Food Group sem Baugur og Fons, yfirtóku í ársbyrjun 2005.