Baugur Group hefur selt Julian Graves til Holland & Barrett. Julian Graves er breskt smásölufyrirtæki sem sérhæfir sig í snarli og hráefni í matvæli. Kaupandinn er stærsta heilsuvöruverslanakeðja Bretlands, með yfir 500 verslanir í Bretlandi, Írlandi og Hollandi.

„Við höfum alltaf litið á Julian Graves sem okkar helsta keppinaut,“ er haft eftir Peter Aldis, forsvarsmanni Holland & Barrett í breskum fjölmiðlum í dag. Hann segist því vera ánægður með kaupin.