Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag samning við þýsku byggingavöruverslunina Bauhaus um að hún fái lóð í svokölluðum Höllum við rætur Úlfarsfells austan Vesturlandsvegar, segir í tilkynningu frá aðstoðarmanni borgarstjóra Reykjavíkur.

Áður hafði fyrirtækið leitast við að fá lóð undir starfsemi sína í tveimur nágrannabyggðarlögum Reykjavíkur, en án árangurs.

Bauhaus mun greiða liðlega 600 milljónir króna fyrir byggingarréttinn á lóðinni. Í tilkynningunni segir að ráðið hafi fagnaði tilkomu Bauhaus á byggingavöru-markaðinn í Reykjavík og sagðist í bókun vænta þess að samkeppni á þeim markaði muni aukast, borgarbúum til hagsbóta.

Þýska verslanakeðjan sótti um lóðina 16. janúar síðastliðinn og hyggst reisa um 20.000 fermetra verslunarhúsnæði á 5,5-6,0 hektara lóð.

Verðið sem greitt er fyrir byggingarréttinn á lóðinni er 30.800 á hvern byggðan fermetra. Miðað við 20.000 fermetra byggingu nemur því heildargreiðsla fyrir lóðina 616 milljónum króna.