Nafni aflþynnuverksmiðjunnar Becromal hefur verið breytt í TDK Foil Iceland ehf., samkvæmt tilkynningu um málið, en móðurfélagið heitir TDK Corporation. Breytingin er sögð liður í að samræma markaðsstarf TDK Group samsteypunnar.

TDK Corporation er alþjóðlegt rafeindatæknifyrirtæki með aðsetur í Japan, og hjá því starfa yfir 100 þúsund manns. Becromal var stofnað árið 2009 og er dótturfyrirtæki hins ítalska TDK Foil Italy.

Tilkynningin í heild:

TDK Corporation tilkynnir að nafni dótturfélagsins Becromal Iceland ehf. hefur verið breytt í TDK Foil Iceland ehf. Breytingin tók gildi þann 6. nóvember síðastliðinn. Nafnabreyting aflþynnuverksmiðjunnar á Akureyri er liður í að samræma markaðsstarf TDK Group. Nýtt nafn mun ekki hafa nein áhrif á verksmiðjuna, stjórnun hennar, starfsemi eða framleiðslu. Á næstu dögum breytist útlit Becromal verksmiðjunnar, þegar hið vel þekkta merki TDK leysir það gamla af hólmi.

TDK Corporation er leiðandi rafeindatæknifyrirtæki á heimsvísu með aðsetur í Tókýó í Japan. Fyrirtækið rekur framleiðslufyrirtæki, hönnunar- og söluskrifstofur í Asíu, Evrópu og í Norður-og Suður-Ameríku. Í áætlunum sínum fyrir yfirstandandi ár gerir gerir TDK ráð fyrir að selja framleiðsluvörur fyrir um 12 milljarða USD. Hjá fyrirtækinu starfa um 103.000 manns um allan heim.