Útboðsþing SI sem haldið er í samstarfi við Mannvirki - félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda fer fram í beinu streymi núna klukkan 9. Á þinginu kynna fulltrúar 11 opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins. Nálgast má beint streymi frá þinginu hér að neðan.

Fundarstjóri er Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi:

  • Setning - Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Reykjavíkurborg - Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Framkvæmdasýsla ríkisins - Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Orka náttúrunnar - Hildigunnur Jónsdóttir, forstöðuman verkefnastofu
  • Landsvirkjun - Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
  • Faxaflóahafnir - Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tæknideildar
  • Vegagerðin - Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Landsnet - Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
  • NLSH - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
  • Veitur - Katrín Karlsdóttir, teymisstjóri verkefnastjóra
  • Isavia - Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræðideildar