Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. lagði í gær fram beiðni um greiðslustöðvun BG Holding ehf. fyrir enskan dómstól.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skilanefnd Landsbankans en BG Holding ehf. er dótturfélag Baugs Group hf. og meginstarfsemi þess er tengd fjárfestingum Baugs Group hf. í Bretlandi.

Meðal fjárfestinga BG Holding ehf. eru matvöruverslanirnar Iceland Foods, verslunarmiðstöðvar House of Fraser og leikfangaverslanir Hamleys.

Í tilkynningunni kemur fram að Skilanefnd Landsbanka Íslands hf., sem er stærsti kröfuhafi BG Holding ehf., og Baugur hafa um nokkra hríð leitað leiða til lausnar þeim fjárhagsvanda sem steðjar að BG Holding ehf.

Í þeim viðræðum naut skilanefndin aðstoðar PricewaterhouseCoopers (PWC) UK, og lögfræðistofunnar SJ Berwin UK sem skilanefndin réð til verksins.

„Það var álit ráðgjafa skilanefndarinnar að hagsmunir framangreindra félaga BG Holding ehf. og kröfuhafa Landsbanka Íslands hf væru best tryggðir með því að fara þá leið að leggja fram beiðni um greiðslustöðvun BG Holding ehf. fyrir enskan dómstól,“ segir í tilkynningunni.