Kauphöllin hefur samþykkt framkomna beiðni Exista hf. um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum.

Í tilkynninu frá Kauphöllinni kemur fram að hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum eftir lokun viðskipta föstudaginn 12. desember 2008 með vísan til ákvæðis í Skráningarskilyrðum Kauphallarinnar.

Kauphöllin gerir þann fyrirvara við ofangreinda dagsetningu að opið hafi verið fyrir viðskipti með bréfin í a.m.k. 10 viðskiptadaga áður en þau eru tekin úr viðskiptum.