Ársfundur atvinnulífsins fer fram í dag í rafrænni dagskrá og hefst kl. 09:00. Yfirskrift ársfundar er Höldum áfram og er byggð á átaksverkefni SA sem hófst í nóvember 2020 sem viðbragð við heimsfaraldrinum.

Á ársfundinum er farið yfir 21 áskorun og lausn í sex efnisflokkum sem snúa að opinberum rekstri, skattastefnu, rekstrarumhverfi atvinnulífsins, sjálfbærri þróun, vinnumarkaðnum, menntamálum og heilbrigðismálum. Atvinnurekendur tjá sig um áskoranir og ráðherrar bregðast við í líflegum umræðum.

Ársfundurinn er einnig sagður slá botninn í hringferð sem forsvarsmenn SA fóru um landið í byrjun sumars þar sem þau hittu félagsmenn og áttu gott spjall yfir súpu.