Ársfundur Íslandsstofu fer fram í Hörpu klukkan 14-15 í dag. Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu og má finna streymið neðst í fréttinni.

Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu, setur fundinn. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flytur ávarp, Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu fjallar um Beggja skauta byr.

Þá munu Anna Hallberg, ráðherra utanríkisviðskipta Svíþjóðar og samstarfsráðherra Norðurlanda og Fredrik Fexe, framkvæmdastjóri, Business Sweden, fjalla um samstarf á alþjóðamörkuðum. Einnig munu raddir atvinnulífsins hljóma um stöðu og horfur fjölbreyttra íslenskra útflutningsgreina. Eliza Reid forsetafrú stýrir fundinum.