

Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga kynna nýja skýrslu um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu. Hefst kynningin núna kl. 10 og lýkur kl. 11:30. Streymið má nálgast hér að neðan.
Skýrslan sem nú er gefin út byggir á sömu aðferðafræði og sömu innviðir eru metnir og í sambærilegri skýrslu samtakanna frá árinu 2017 en þá var í fyrsta sinn hér á landi gefin út heildstæð skýrsla um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi. Markmið með útgáfu skýrslunnar er að lýsa stöðu helstu innviða hagkerfisins og draga fram hvað þarf til að tryggja gæði þessara meginstoða íslensks samfélags. Í skýrslunni er lagt mat á endurstofnvirði og viðhaldsþörf, ástand innviðanna er metið og greint frá hverjar framtíðarhorfurnar eru.
Innviðirnir sem fjallað er um í skýrslunni eru flugvellir, hafnir, vegakerfi, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuvinnsla, raforkudreifing og -flutningur, fasteignir ríkis og sveitarfélaga og úrgangsmál.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi: