Flugfélagið Czech Airlines hefur ákveðið að fljúga á milli Keflavíkurflugvallar og Prag í Tékklandi sumarið 2017. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum frá 1. júní 2017 til 26. september 2017 á Airbus A319 þotum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

„Prag er af mörgum talin ein fallegasta borg Evrópu. Í borginni eru glæsilegar byggingar, listaverk og sögulegar minjar, þröngar götur og fjöldi kaffihúsa og veitingastaða. Menningarlífið er fjölbreytt og áhugaverðir viðburðir alla daga,“ segir einnig í tilkynningunni.

Haft eftir eftir Hlyni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, að það sé mjög ánægjulegt að bæta Prag inn á vaxandi lista áfangastaða í beinu áætlunarflugi frá Keflavíkurflugvelli. „Prag er mjög falleg borg sem fjöldi Íslendinga hefur fallið fyrir í gegnum tíðina og við vonum auðvitað að sem flestir nýti sér tækifærið og heimsæki borgina næsta sumar,“ segir Hlynur.