Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Samband íslenskra sveitarfélaga standa í dag fyrir fyrsta samstarfsþingi þessara aðila og fer það fram í gegnum fjarfundarkerfið Zoom. Yfir 100 eru skráðir til þátttöku á þinginu. Til þingsins eru boðaðir allir þeir kjörnu fulltrúar, nefndarmenn og embættismenn sem mesta aðkomu hafa að húsnæðismálum af hálfu sveitarfélaga. Á samstarfsþinginu er gert ráð fyrir að sveitarstjórnarmenn og fulltrúar HMS og ráðuneytis ræði opinskátt um húsnæðimál frá öllum hliðum. Umræðurnar verða innlegg í samstarfsáætlun HMS og Sambandsins sem kynnt verður í kjölfarið. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Tilgangurinn með boðun samstarfsþingsins og útgáfu samstarfsáætlunarinnar er að tryggja að opinberir aðilar geti brugðist hraðar við þörfum almennings í húsnæðismálum og að sveitarfélögin hafi aukna aðkomu á fyrstu stigum stefnumótunar í húsnæðismálum. Á samstarfsþinginu verður einnig rætt um stjórnsýslu mannvirkjamála en sérstakt átak er nú í gangi til að samræma betur byggingareftirlit á milli sveitarfélaga og á landsvísu,“ segir í tilkynningu.

Samstarfsþingið hófst kl.10 og var skipt í tvennt. Á fyrri hluta þingsins gátu þinggestir valið á milli tveggja málstofa en í seinni hlutanum fór fram opinn umræðufundur allra þátttakenda á þinginu sem Ásmundur Einar Daðason, fjölskyldu- og barnamálaráðherra, sat. Markmið fundarins ku vera að stuðla að beinu samtali sveitarstjórnarmanna og annarra sem koma að húsnæðismálum á sveitarstjórnarstiginu við stjórnendur og sérfræðinga HMS auk ráðherra og fulltrúa viðeigandi ráðuneyta.

„Sveitarfélögin eru leiðandi aðili í húsnæðismálum og bera meðal annars ábyrgð á skipulagsmálum, byggingareftirliti, stefnumörkun og áætlanagerð. Sveitarfélögin þekkja sömuleiðis einna best til þarfa ólíkra hópa í húsnæðismálum og er vel kunnugt um helstu áskoranir sem bygginga- og hönnunaraðilar eru að kljást við hverju sinni. HMS er sú stofnun sem ber ábyrgð á mótun og framkvæmd húsnæðisstefnu á landsvísu og við viljum eiga nánara samstarf við sveitarfélögin um forgangsröðun verkefna og umbætur í þessum mikilvæga málaflokki. Samvinna og gagnkvæmur skilningur þessara aðila á markmiðum og framkvæmd stefnumörkunar er lykilatriði til að mæta þörfum landsmanna á sviði húsnæðis. Til að orða þetta á mannamáli þá erum við að fara tala um hvað þurfi að gera og hvernig eigi að framkvæmda það, sem eru líka hefðbundin verkefni hjá húsfélögum fjölbýlishúsa og við höfum haft það á orði í undirbúningsvinnunni að opni umræðufundurinn á morgun verði líklega fjölmennasti húsfundur Íslandssögunnar," segir Hermann Jónasson, forstjóri HMS, í tilkynningunni.

Nú eftir hádegi fer fram árlegt húsnæðisþing HMS og félagsmálaráðuneytisins. Húsnæðisþingið er öllum opið og stendur yfir frá kl. 13-15. Hægt er að horfa á það í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan. Dagskrá þingsins má nálgast hér .