Samtök iðnaðarins, SI, fær forystufólk stjórnamálaflokkana á kosningafund sem fer fram í Norðurljósum í Hörpu í dag kl. 13-15. Á fundinum verður kastljósinu beint að fimm málefnum sem samtökin telja brýnust fyrir samkeppnishæfni Íslands. Þá verður einnig rætt um tækifæri sem þarf að grípa til að auka útflutningstekjur þjóðarinnar. Streymi af fundinum má finna neðar í fréttinni.

„Samtökin vilja með fundinum leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda Alþingiskosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands; menntun – innviðir – nýsköpun – starfsumhverfi – orka og umhverfi,“ segir í tilkynningu SI.

Fundurinn hefst með ávarpi frá Árna Sigurjónssyni, formanni SI. Í kjölfarið mun Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, stýra umræðum við eftirfarandi forystufólk flokkanna:

Inga Sæland - Flokkur fólksins
Willum Þór Þórsson
- Framsóknarflokkur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson -
Miðflokkurinn
Björn Leví Gunnarsson - Píratar
Kristrún Frostadóttir - Samfylking
Bjarni Benediktsson - Sjálfstæðisflokkur
Gunnar Smári Egilsson - Sósíalistaflokkurinn
Katrín Jakobsdóttir - Vinstri græn
Daði Már Kristófersson -
Viðreisn

98% vill að stjórnvöld einblíni á stöðugleika

SI hefur gefið út nýja greiningu um niðurstöður úr könnun meðal stjórnenda iðnfyrirtækja þar sem meðal annars kemur fram að 98% þeirra vilja að næsta ríkisstjórn leggi mikla áherslu á stöðugleika í starfsumhverfi fyrirtækja.

Samtökin segja að miklu máli skiptir að ákvarðanir nýrra stjórnvalda leiði til umbóta á Íslandi, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. SI hafa lagt fram 33 tillögur til umbóta og verða þær til umræðu á kosningafundinum.