Atvinnulífsráðstefna Almannaróms og Samtaka atvinnulífsins fer fram í Silfurbergi í Hörpu á eftir kl. 14:30-16:30. Innlendir og erlendir sérfræðingar í máltækni auk fulltrúa atvinnulífsins flytja ávörp.

Rætt verður um stað íslenskunnar í alþjóðlega tækniheiminum, notkun gervigreindar og máltækni til að bæta þjónustu og íslensku sem annað tungumál. Undir lok ráðstefnunnar mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenda Máltækniverðlaunin 2022.

Dagskrá:

Máltækni í nútíð og framtíð - ávarp: Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms

Íslenskan í alþjóðlegum tækniheimi - ávarp : Xuedong Huang, Technical Fellow and Chief Technology Officer Azure AI, Microsoft

Mikilvægi íslenskunnar í atvinnulífi og samfélagi - pallborð :

  • Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyrir Venture Management og formaður stjórnar Almannaróms

AI and Language Learning - ávarp: Steven C. Toy, forstjóri Memrise

Íslenska sem annað mál - pallborð

  • Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus
  • Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Tiro
  • Gamithra Marga, stofnandi TVÍK
  • Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs
  • Örn Úlfar Sævarsson, hugmyndasmiður og spurningahöfundur og formaður fulltrúaráðs Almannaróms

Betri þjónusta með gervigreind og máltækni - pallborð:

  • Anna Björk Nikulásdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Grammateks ehf.
  • Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar
  • Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition
  • Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs sjá Samtökum atvinnulífsins

Máltækni í daglegu lífi - pallborð:

  • Aðalsteinn Stefánsson, hönnuður á upplýsingatæknisviði Íslandsbanka
  • Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Miðeindar ehf.
  • Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Magga ehf. og stjórnarmaður Almannaróms

Getur máltækni tryggt mannréttindi? - pallborð:

  • Kolbrún Eir Óskarsdóttir, móðir drengs sem nýtir máltækni á hverjum degi í alla tjáningu
  • Hrönn Birgisdóttir, Iðjuþjálfi og sérfræðingur á velferðasviði hjá Öryggismiðstöð Íslands
  • Gunnar Thor Örnólfsson, sérfræðingur í talgervingu hjá Háskólanum í Reykjavík
  • Hlynur Þór Agnarsson, aðgengis- og upplýsingafulltrúi Blindrafélagsins
  • Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte og stjórnarmaður Almannaróms

Máltæknivegferð Símans - ávarp: Orri Hauksson, forstjóri Símans

Lokaorð: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Máltækniverðlaunin 2022.