Nýsköpunarverðlaun Íslands verða veitt í dag, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 11-11.30 í beinni útsendingu frá Hörpu.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir verðlaunin sem veitt hafa verið framsæknum nýsköpunarfyrirtækjum frá árinu 1994, þá á Nýsköpunarþingi. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu.
Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.
Hér má sjá streymi frá athöfninni:
Nýsköpunarverðlaun Íslands hafa verið veitt eftirtöldum fyrirtækjum:
- 2019 Curio
- 2018 Kerecis
- 2017 Skaginn hf.
- 2016 Dohop
- 2015 Zymetech
- 2014 Meniga
- 2013 Valka
- 2012 Primex
- 2011 Mentor
- 2010 Nox Medical
- 2009 Mentis Cura
- 2008 ORF líftækni
- 2007 Hafmynd
- 2006 Stjörnu-Oddi
- 2005 CCP
- 2004 Lyfjaþróun
- 2003 Altech JHM
- 2002 Stofnfiskur
- 2001 Fiskeldi Eyjafjarðar
- 2000 Bláa Lónið
- 1999 Flaga
- 1998 Íslensk erfðagreining
- 1997 Hugvit
- 1994 Vaki fiskeldiskerfi