Play heldur fjárfestakynningu í aðdraganda útboðs félagsins sem hefst klukkan 8:30 í dag. Þar verður meðal annars farið yfir rekstraráætlun félagsins í aðdraganda hlutafjárútboðs sem hefst á fimmtudaginn og stendur fram á föstudag. Á fimmtudaginn fer fyrsta áætlunarflug Play einnig í loftið.

Til stendur að selja nærri þriðjungshlut í Play á um 4 milljarða króna í útboðinu. Ráðgert er að Play verð skráð á First North markað kauphallarinnar þann 9. júlí.

Fylgjast má með kynningarfundinum í spilaranum hér að neðan: