Ráðherra samkeppnismála, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sérfræðingur í samkeppnismálum og formaður Félags atvinnurekenda eru meðal þeirra sem koma flytja erindi á fundi Félags atvinnurekenda sem hefst klukkan tvö í dag.

Meðal þess sem er til umræðu á fundinu eru áhrif aukinna ríkisumsvifa vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar á samkeppni og hvort aðgerðir vegna kórónuveirukreppunnar hafi veikt samkeppni. Velt verður upp hvar stjórnvöld hafi misstigið sig og hvernig virk samkeppni geti flýtt fyrir efnahagsbatanum.

Dagskrá:

  • 14.00 Setning fundarins - Magnús Óli Ólafsson formaður FA
  • 14.05 Ávarp - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra samkeppnismála
  • 14.10 „The role of competition policy in supporting economic recovery“ - Ania Thiemann, sérfræðingur í samkeppnismálum hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD
  • 14.25 „Á samkeppnismarkaði að keppa við ríkið“ - Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
  • 14.40 „Breytt búvörulög og samkeppni á matvörumarkaði“ - Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Innnesi
  • 14.55 „Sókn er besta vörnin – verndarstefna skaðar atvinnulíf og almenning“ - Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Fylgjast má með fundinum í spilaranum hér að neðan.