Seðlabankinn kynnir innihald ritsins Fjármálastöðugleika sem kom út í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 10.
Á fundinum kynna Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs efni ritsins.
Fylgjast má með streymi af fundinum í spilaranum hér að neðan: