Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Unnur Gunnarsdóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits munu kynna skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabankans og svara spurningum þingmanna á opnum fundar efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9.
Fjármálaeftirlitsnefnd, er ábyrg fyrir fjármálaeftirliti Seðlabankans og ber lögum samkvæmt að gefa Alþingi skýrslu einu sinni á ári. Í nefndinni sitja Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og þrír fulltrúar skipaðir af fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem eru Andri Fannar Bergþórsson, Ásta Þórarinsdóttir og Guðrún Þorleifsdóttir.
Fylgjast má með fundinum í spilaranum hér að neðan: