Ben Affleck mun leika Batman í myndinni Batman vs. Superman. Þetta verður í fyrsta sinn sem ofurhetjurnar tvær, Batman og Superman, sjást saman á hvíta tjaldinu.

BBC fréttastofan greinir frá því að Henry Cavill mun leika Superman í myndinni, en hann lék áður í myndinni Man of Steel. Framleiðsla nýju myndarinnar mun hefjast á næsta ári og búist er við því að myndin kom i út sumarið 2015.

Greg Silverman, forstjóri Warner Bros, segir að framleiðendur hafi vitað að afburðaleikari þyrfti að taka að sér hlutverk Batmans og Ben Affleck uppfylli þau skilyrði.