Nýir eigendur, B. Benediktsson ehf., Benedikt Sveinsson og Ker hf., hafa keypt öll hlutabréf SÍF í Iceland Seafood International (ISI). Hinir nýju eigendur hafa þegar tekið við félaginu. Nýju eigendurnir hafa samþykkt ósk Kristjáns Davíðssonar, forstjóra ISI um að láta af störfum hjá félaginu. Einnig hefur orðið samkomulag um að Benedikt Sveinsson taki við starfi forstjóra nú þegar, en Benedikt hefur áratuga reynslu í rekstri fyrirtækja í sölu og framleiðslu sjávarafurða bæði hér heima og erlendis.
Hlutverk Iceland Seafood International er sala og dreifing sjávarafurða en félagið stendur á gömlum merg, rekur starfsemi í átta löndum og hefur á sínum snærum reynslumikið starfslið. Nýir eigendur munu leggja áherslu á að efla tengsl félagsins við framleiðendur og notendur sjávarafurða ásamt því að tryggja áhugavert starfsumhverfi.