Benedikt Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt fer frá ALMC hf. (áður Straumur Burðarás fjárfestingabanki hf.), þar sem hann starfaði sem forstjóri Straums IB.

Benedikt Gíslason
Benedikt Gíslason
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Benedikt er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og starfaði áður sem framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Straums.

Þau svið sem tilheyra fjárfestingarbankasviði MP banka eru fjárstýring, eigin viðskipti, fyrirtækjasvið, lánasvið, eignastýring og einkabankaþjónusta MP banka.