Benedikt Gíslason, sem áður var yfir eigin viðskiptum hjá Straumi [ STRB ] en var frá því í apríl í fyrra yfir markaðsviðskiptum hjá FL Group [ FL ], hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra hjá Straumi yfir Markaðsviðskiptum, Eigin viðskiptum og Fjárfestingarsviði, að meðtöldu Straumur Capital Management (SCM).
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi þar sem haft er eftir William Fall forstjóra Straums: „Við fögnum því að fá Benedikt aftur til liðs við okkur. Umfangsmikil reynsla hans á innlendum sem erlendum mörkuðum felur í sér þýðingarmikla viðbót fyrir bankann.“
„Ég er afar ánægður með að ganga til liðs við Straum á ný,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni í tilkynningunni. „Bankinn hefur þróast mikið á skömmum tíma og ég tel að við eigum mörg spennandi sóknarfæri.“
Núverandi framkvæmdastjórar yfir Eigin viðskiptum Straums, Flemming Bendsen og Fredrik Sjöstrand, gegna áfram stöðum sínum innan bankans en munu í framtíðinni heyra undir Benedikt.