Benedikt Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hann hóf störf í dag, að því er segir í tilkynningu.
Benedikt er fæddur árið 1964. Hann er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.A. í hagfræði frá University of California, Los Angeles (UCLA). Benedikt hefur m.a. starfað fyrir Morgunblaðið, bandaríska ráðgjafarfyrirtækið CASA/HNC, Íslenska erfðagreiningu og var nú síðast í hagfræðideild Landsbankans.
Benedikt er kvæntur Björgu Kjartansdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau þrjá syni.