Benedikt K. Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur og hefur störf á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Benedikt hefur starfað hjá KPMG frá árinu 2001, verið á meðal eigenda frá árinu 2008 og sat í stjórn fyrirtækisins á árunum 2009 - 2013. Benedikt hefur setið í framkvæmdastjórn og verið sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG frá árinu 2013.

Benedikt er með M.Sc. próf í fjármálum frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af hvoru tveggja fjármála- og rekstrarráðgjöf sem og af stafrænni umbreytingu fyrirtækja.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

„Víðtæk reynsla Benedikts sem starfað hefur við ráðgjöf hjá KPMG síðustu tuttugu árin mun koma til með að nýtast Orkuveitu Reykjavíkur afar vel og ég býð hann velkominn til starfa.“

Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála OR:

„Það er spennandi að koma til starfa hjá fyrirtæki með jafn fjölbreyttan og umfangsmikinn rekstur og Orkuveita Reykjavíkur. Starfsemin hefur mikil áhrif hér á landi og leikur m.a. stórt hlutverk í sjálfbærri þróun samfélagsins, s.s. í orkuskiptum og loftslagsmálum. Ég hlakka til að kynnast starfseminni enn frekar og starfa með öflugum hópi í þeim áhugaverðu verkefnum sem eru framundan."