Bent Scheving Thorsteinsson hefur ákveðið að veita Háskóla Íslands veglega peningagjöf til Styrktarsjóða skólans að upphæð kr. 13 milljónir.

Bent Scheving Thorsteinsson hefur verið velgjörðarmaður Háskóla Íslands frá síðustu aldamótum og  með framlagi sínu að þessu sinni hefur hann fært Háskólanum 60 milljónir króna á nærri 7 árum, segir í fréttatilkynningu vegna gjafarinnar. Féð hefur runnið til stofnunar þriggja sjóða, sem heyra undir Styrktarsjóði Háskólans. Sjóðirnir eru Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar læknis stofnaður árið 2000, Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar lyfsala stofnaður árið 2001 og Styrktarsjóður Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar stofnaður árið 2001. Alls hafa sjóðirnir veitt 15 styrki til vísindarannsókna. Með gjöf Bents er eigið fé hvers sjóðs fyrir sig nú orðið 20 milljónir kr. Fjárhæðir sjóðanna hafa verið nýttar í þágu rannsókna við Háskóla Íslands og með viðbótarframlaginu aukast enn frekar möguleikar meistara- og doktorsnema við Háskólann til námsstyrkja.