Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing tilkynnti í dag að félagið hefði gert sölusamning við rússneska fyrirtækið Russian Technologies, sem er móðurfélag rússneska flugfélagsins Aeroflot.

Frá þessu er greint á vef BBC en Beoing mun selja félaginu 50 Boeing 737 flugvélar fyrir um 3,7 milljarða Bandaríkjadali.

Þá hefur rússneska félagið jafnframt tryggt sér forkaupsrétt á 35 vélum af sömu tegund til viðbótar.