Skömmu fyrir hádegi í dag kom hin nýja Bergey VE til hafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn og var vel fagnað, að því er fram kemur í tilkynningu frá Síldarvinnslunni hf.

Bergur-Huginn, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, fékk skipið afhent 1. október frá skipasmíðastöðinni Vard í Noregi. Skipinu var siglt til Akureyrar 6. október þar sem Slippurinn hefur séð um frágang á millidekki skipsins.

Nú verða veiðarfæri tekin um borð og gert ráð fyrir að skipið haldi til veiða strax á morgun.

„Það verður gaman að hefja veiðar á þessu nýja skipi. Á leiðinni frá Akureyri fengum við aðeins brælu úti fyrir Norðurlandinu og það lét ágætlega. Það eru öðruvísi hreyfingar á þessu skipi en á gömlu Bergey. Það er flott að hefja veiðar á nýju skipi á laugardegi: Laugardagur til lukku,“ er haft eftir Jóni Valgeirssyni skipstjóra í tilkynningu Síldarvinnslunnar.

Þar segir enn fremur:

Bergey var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi og er eitt af sjö systurskipum sem skipasmíðastöðin smíðaði fyrir íslensk fyrirtæki. Eitt þessara skipa er Vestmannaey VE sem kom nýtt til landsins í júlímánuði sl. Skipin eru hin glæsilegustu og afar vel búin, en um er að ræða togskip sem eru 28,9 m að lengd og 12 m að breidd. Stærð þeirra er 611 brúttótonn. Eru skipin búin tveimur aðalvélum og tveimur skrúfum.