Berglind Pétursdóttir hefur verið ráðin hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni H:N Markaðssamskipti. Berglind hefur töluverða reynslu úr auglýsingageiranum auk þess sem hún hefur verið með vikuleg innslög í Vikunni á RÚV. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Það er frábært að fá Berglindi í Bankastrætið. Reynsla hennar og hugmyndaauðgi á eftir að nýtast okkur vel enda erum við með stóran og fjölbreyttan kúnnahóp sem fer ört stækkandi," segir Högni Valur Högnason, hönnunarstjóri hjá H:N Markaðssamskiptum, í tilkynningunni.

Berglind sinnti starfi kynningarstjóra Listahátíðar í Reykjavík árin 2019-2021. Þar á undan starfaði hún sem markaðssérfræðingur hjá Símanum og texta- og samfélagsmiðlasérfræðingur meðal annars á ENNEMM og Íslensku auglýsingastofunni.

Síðastliðin fimm ár hefur Berglind einnig starfað við dagskrárgerð á RÚV ásamt Gísla Marteini Baldurssyni í sjónvarpsþættinum Vikunni og mun sinna því starfi áfram samhliða störfum sínum á H:N.

Berglind útskrifaðist með BA-gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands 2011 og starfaði sjálfstætt sem dansari og danshöfundur áður en hún hóf störf í auglýsingum. Hún hefur auk þess setið í stjórn Reykjavík Dance Festival og átt sæti í Grímunefnd fyrir hönd Félags íslenskra listdansara.