Stjórn Orku náttúrunnar (ON) hefur ráðið Berglindi Rán Ólafsdóttur framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Berglind hefur gengt starfinu tímabundið frá því í september síðastliðnum en það var auglýst laust til umsóknar í byrjun þessa árs, eftir að Bjarni Már Júlíusson var rekinn frá félaginu, fyrir hegðun sem hann segir skýrslu um mál fyrirtækisins hreinsa sig af . Þórður Ásmundsson var fyrst ráðinn tímabundið í starfið, en hann tók ekki við því vegna ásakana ótengdum störfum hans, og fór í kjölfarið í leyfi.

Berglind er sameindalíffræðingur með MBA próf frá IESE í Barcelona. Hún var ráðin til  Orku náttúrunnar á árinu 2017 sem forstöðumaður fyrirtækjamarkaða og hafði þá meira en áratugarreynslu af viðskiptaþróun meðal annars hjá Landsvirkjun, Medis og Íslenskri erfðagreiningu.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ON segir félagið byggja á traustum grunni og búi að metnaðarfullu og hæfu starfsfólki. „Það er því tilhlökkunarefni að taka á móti framtíðinni með Orku náttúrunnar. Það eru forréttindi að búa í landi sem býður upp á auðlindir til endurnýjanlegrar rafmagnsframleiðslu. Þeim fylgir sú ábyrgð að nýta auðlindirnar sem best til hagsbóta fyrir okkur og komandi kynslóðir.“ segir Berglind Rán.

„Loftslagsmál eru lykilmál allra samfélaga og hefur vísindafólk ON  þróað aðferðir til þess að binda gróðurhúsalofttegundir í grjót sem styður við metnaðarfull lofslagsmarkmið fyrirtækisins. Fyrirtæki í Jarðhitagarði ON við Hellisheiðarvirkjun nýta einnig þessa brautryðjendatækni í sínum nýsköpunarverkefnum.

Hluti af því að bregðast við loftslagsvandanum er að leggja áherslu á betri nýtingu auðlindanna. Jarðhitagarðurinn er einmitt vettvangur fyrir umhverfisvæna starfsemi sprotafyrirtækja sem leggja áherslu á nýsköpun, betri nýtingu og hringrásarhagkerfi.

Orka náttúrunnar finnur til ábyrgðar á því að vel gangi í orkuskiptum í samgöngum og hefur sýnt það í verki með því að leiða uppbyggingu rafbílainnviða um allt land. Við höfum leitt orkuskipti í samgöngum og munum halda áfram á þeirri braut.

Um Orku náttúrunnar

Orka náttúrunnar er stærsta orkufyrirtæki landsins á sviði jarðvarma og vinnur rafmagn og heitt vatn í virkjunum á Nesjavöllum og Hellisheiði auk raforkuvinnslu í Andakílsárvirkjun. ON er þjónustufyrirtæki með viðskiptavini um allt land og býður heimilum og fyrirtækjum eingöngu upp á vottaða endurnýjanlegra orku.

Fyrirtækið er leiðandi í uppbyggingu innviða fyrir orkuskipti í samgöngum hér á landi segir í fréttatilkynningu félagsins sem rekur 50 hlöður fyrir rafbílaeigendur um allt land. Árleg velta fyrirtækisins nemur um 20 milljörðum króna og starfsfólk er liðlega 80 talsins. Formaður stjórnar ON er Hildigunnur H. Thorsteinsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkuveitu Reykjavíkur.