Bergsteinn Karlsson hefur verið ráðinn hópstjóri í öryggislausnum hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Markmiðið með ráðningu Bergsteins, að því er kemur fram í fréttatilkynningu, er að samræma sölustarf og efla enn frekar ráðgjöf í netöryggi hjá viðskiptavinum fyrirtækisins.

Bergsteinn hefur undanfarin ár starfað sem öryggissérfræðingur, nú síðast hópstjóri hjá öryggisfyrirtækinu Syndis. Þar áður vann hann sem rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Bergsteinn er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig lokið grunnnámi í lögreglufræðum ásamt lögreglurannsóknum frá Lögregluskóla ríkisins.

Bergsteinn er giftur Vigdísi Halldórsdóttur, lögfræðingi hjá Vís og eiga þau tvö börn. Helstu áhugamál hans er að ferðast með fjölskyldu og góðu fólki, allt sem viðkemur tækni- og öryggismálum, klassískri tónlist og einstaka tölvuleikjum.