Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytis
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytis
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins úr hópi 93ja umsækjenda. Bergþóra Njála er fædd árið 1969 og hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu undanfarinn áratug þar sem hún m.a. sérhæfði sig í umfjöllun um umhverfismál.

Þar áður starfaði hún á fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Bergþóra Njála er með próf í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur lagt stund á meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði meðfram vinnu síðastliðið ár.