Bergþóra Þorkelsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ÍSAM ehf. Bergþóra tekur við starfinu af Agli Ágústssyni sem á rúmlega 40 ára feril að baki hjá félaginu.

Bergþóra hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra hjá Fastusi ehf. frá árinu 2012. Fyrir þann tíma starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Líflandi og Kornaxi.

Bergþóra er menntaður dýralæknir en hún hefur einnig stundað nám í markaðsfræðum við Chartered Institute of Marketing í Bretlandi og í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Bergþóra er gift Auðunni Hermannssyni mjólkurverkfræðingi en hann starfar sem framleiðslu og tæknistjóri hjá Mjólkursamsölunni. Þau eiga tvær dætur.

ÍSAM er ein af elstu heildsölum landsins stofnuð 1964. Í dag rekur félagið auk þessa framleiðslufyrirtækin Mylluna, Frón, Kexsmiðjuna Akureyri og ORA. Félagið er með starfsemi á fimm stöðum.