Byggðaráð sveitarfélagsins Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Berg Elías Ágústsson í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára, segir í fréttatilkynningu.

?Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þau spennandi viðfangsefni sem framundan eru hjá Norðurþingi. Þetta er nýtt sveitarfélag og mjög áhugavert að vinna að uppbyggingu á því og öllum þeim tækifærum sem nýju sveitarfélagi fylgja," segir Bergur Elías.

?Í öðru lagi er framundan uppbygging á stóriðju við Húsavík og verður mjög áhugavert að fá að vera þátttakandi í því stóra verkefni."

Í tilkynningunni segir að auglýst hafi verið eftir sveitarstjóra og bárust 13 umsóknir en tvær voru dregnar til baka. Eftir umsögn utanaðkomandi ráðningarþjónstu var einn umsækjendanna metinn hæfur en niðurstaða meirihluta byggðaráðs var að hafna öllum umsóknum. Í framhaldi af því var ákveðið að ráða Berg Elías í starfið.

Bergur Elías Ágústsson var á síðasta kjörtímabili bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Bergur er 43 ára að aldri, fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur og menntaður í hagfræði frá Sjávarútvegsháskólanum í Tromsö í Noregi.

Hann hefur gegnt margvíslegum stjórnundarstörfum í atvinnulífi hér á landi, m.a. sem rekstrarstjóri og síðar framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. ? Dvergasteins, framkvæmdastjóri fisk-vinnslufyrirtækjanna NASCO og Norðuróss á Blönduósi.

Árið 2003 tók Bergur Elías við starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og gegndi því til loka kjörtímabils í ár.

Bergur Elías er í sambúð með Bryndísi Sigurðardóttir og eiga þau tvo syni fædda 1998 og 2001. Auk þess á Bergur tvær dætur frá fyrra hjónabandi fæddar 1991 og 1993.