Undirritaður var í dag samningur um kaup Bergs-Hugins ehf. á útgerðarfélaginu Bergi ehf. í Vestmannaeyjum. Bergur hefur gert út togarann Berg VE 44. Togarinn er 569 brúttótonn að stærð og með 1.300 hestafla vél. Aflaheimildir félagsins eru 0,36% af heildarkvóta á fiskveiðiárinu 2020-2021 eða sem nemur 1.514 þorskígildistonnum.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir:

Segja má að saga Bergs-Hugins og Bergs sé samofin en upphaf hennar má rekja til ársins 1954 þegar vélbáturinn Bergur VE 44 var keyptur til Vestmannaeyja, en þá var Bergur hf. stofnað af þeim Kristni Pálssyni og Magnúsi Bergssyni tengdaföður hans. Árið 1972 var útgerðarfélagið Bergur-Huginn stofnað en að því stóðu útgerðarfélögin Bergur hf. og Huginn hf. og var megintilgangur hins sameinaða félags að festa kaup á skuttogara og hefja útgerð hans. Þeir bræður Kristinn og Sævald Pálssynir, útgerðarmenn frá Þingholti í Vestmannaeyjum, renndu hýru auga til skuttogaraútgerðar og fengu mág sinn, Guðmund Inga Guðmundsson útgerðarmann Hugins, til liðs við sig og saman stofnuðu þeir útgerðarfélagið Berg-Hugin ehf. sem síðan festi kaup á skuttogaranum Vestmannaey.

Þegar togarinn var keyptur var ákveðið að gera Berg út áfram og var hann gerður út á net, troll og loðnu en skipstjóri á honum var Sævald Pálsson. Árið 1983 var ákveðið að skipta upp félaginu Bergur-Huginn en Sævald dróg sig út úr því og hélt áfram útgerð Bergs.

Árið 2012 festi Síldarvinnslan hf. kaup á Bergi-Hugin ehf. og eru skip félagsins, Vestmannaey og Bergey, gerð út frá Vestmannaeyjum. Magnús Kristinsson stýrði daglegum rekstri Bergs-Hugins til ársins 2017, eins og hann hafði gert frá stofnun félagsins, en þá tók Arnar Richardsson tengdasonur Magnúsar við sem rekstrarstjóri. Elfa Ágústa, dóttir Magnúsar, starfar á skrifstofu Berg- Hugins og er hún fjórði ættliðurinn sem starfar hjá fyrirtækinu.

Útgerð skipa Bergs-Hugins hefur gengið vel og tók fyrirtækið á móti nýjum skipum á síðasta ári. Kaupin á Bergi ehf eru liður í að styrkja rekstur og útgerð félagsins í Vestmannaeyjum.

Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segir eftirfarandi um kaupin:

„Rekstur Bergs-Hugins hefur gengið vel. Síðastliðið ár var farið í að endurnýja skip félagsins og eru þessi kaup á Bergi ehf. liður í að styrkja enn stoðir okkar í Vestmannaeyjum. Eigendur Bergs fóru þá leið að bjóða fyrirtækjum í Eyjum að koma að kaupum á félaginu og erum við hjá Bergi-Hugin afar þakklátir fyrir að hafa átt kost á að bjóða í félagið. Bergur-Hugin og Bergur eru tengd félög frá gamalli tíð og það gerir kaupin enn ánægjulegri. Frá því að Síldarvinnslan kom að rekstri Bergs-Hugins hefur samstarfið við Eyjamenn verið afar gott, starfsmenn Bergs-Hugins hafa tekið okkur vel og við erum með toppfólk í öllum störfum hjá félaginu.“

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppniseftirlitsins.