Nýr framkvæmdastjóri, Bergur Sigurðsson, hefur verið ráðin til starfa hjá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Bergur nam umhverfisefnafræði við Háskólann í Osló á árunum 1994-2000 og starfaði í framhaldi af því við heilbrigðiseftirlit á Suðurnesjum í sex ár. Síðastliðin þrjú ár gegndi hann starfi framkvæmdastjóra hjá Landvernd en fram að því sat hann í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Í aukastörfum hefur Bergur tekið að sér leiðsögn fyrir erlenda ferðamenn, jafnt ofansjávar sem neðan, og kennt sportköfun við Sportköfunarskóla Íslands. Bergur tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót.