Ársreikningur bæjarsjóðs og samstæðu Reykjanesbæjar fyrir árið 2018 var afgreiddur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í gærkvöldi. Niðurstaða hans er sú besta sem sést hefur í 25 ára sögu sveitarfélagsins. Skuldaviðmið samstæðunnar lækkar undir lögboðið 150% viðmið og er nú 137,29%. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2018 námu 23.187 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir a og b hluta. Rekstrartekjur a-hluta námu 15.662 milljónum króna. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu 7.980 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam að meðaltali 893 stöðugildum.

Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 3.524 milljónir króna og að teknu tilliti til þeirra liða er rekstrarniðurstaða jákvæð um 2.676 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samstæðu a og b hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam hins vegar 6.575 milljónum króna og að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 2.373 milljónir króna.

Heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi námu 66.515 milljónum króna og heildareignir bæjarsjóðs námu um 33.359 milljónum króna í árslok 2018.

Heildarskuldir og skuldbindingar í samanteknum ársreikningi námu um 48.619 milljónum króna og í ársreikningi bæjarsjóðs um 29.123 milljónir króna í árslok 2018.

Eigið fé í samanteknum ársreikningi nam um 17.896 milljón króna og eigið fé bæjarsjóðs nam um 4.236 milljón króna í árslok 2018.

Íbúafjöldi Reykjanesbæjar í lok árs 2018 var 18.930 og fjölgaði um 6,38% frá fyrra ári.