Þjónusta á Íslandi er sú besta í heimi. Þetta kemur fram á lista TripAdvisor, en fyrirtækið setti upp lista yfir upplifun gesta af meðal annars veitingastöðum og gististöðum, sem veita framúrskarandi þjónustu víðs vegar um heiminn. Greint er frá þessu á vef Dailymail .

Reykjavík er einnig í öðru sæti yfir þær borgir sem veita bestu þjónustuna. Loks er Reykjavík í fimmta sæti yfir þær borgir í heiminum sem veita bestu þjónustuna við staði sem laða að sér fjölda ferðamanna.