Vefsíðan bestabod.is , sem opnaði fyrir ári síðan, er samskiptamiðill fyrir fagaðila og einstaklinga og hefur það hlutverk að aðstoða einstaklinga og fyrirtæki að finna fagaðila til að vinna hin ýmsu verk.

BestaBoð hefur nú opnað síðuna alfarið án endurgjalds og geta fagaðilar nú skráð sig á síðuna sér að kostnaðarlausu eins og verkkaupar hafa gert hingað til.

Valdimar Geir Halldórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að breytingin hafi verið gerð í samvinnu við góða aðila og ósk þeirra sem standi að síðunni sé að sérhæfð verkefnamiðlun geti verið öllum opin og þannig bætt verkefnadreifingu á Íslandi og lækkað verkefnakostnað.